Sarpur

Vetrarfrí

Þá er vetrarfríið brátt á enda en Einar, Þórhildur og ég höfum verið í fríi síðan á miðvikudag. Það er allt að gerast í hestamennskunni, mikið riðið út og í dag var Bjalla Brák járnuð en það mun verða minn reiðhestur í vetur. Þau sem eru einnig á járnum eru Fluga Flótta- og Lýsudóttir, Laufi Rökkva- og Hrafntinnusonur, Bríet Forseta og-Dísar frá Möðrufelli sonur og Toppa- Svörru- og Rökkvadóttir. Einnig verða Síða og Eik teknar inn á næstu dögum.

Einar er búin að taka flestöll folöldin og gera þau bandvön og teymast þau nú eins og ekkert sé. Þau verða örmerkt á næstu dögum og síðan sleppt aftur og þau tryppi tekin inn sem á eftir að örmerkja og gera bandvön en það er m.a. Birtu- og  Vilmundardóttirin hún Skálda.

Það er búið að vera mikið afmælisfjör um helgina en bæði Silvía Grettisdóttir og Jeff uppeldissonur Þóru systur héldu upp á 20 ára afmælin sín. Set inn að því tilefni myndir og einnig af hinu og þessu:)

Febrúar 2012

Seinnipartinn á föstudaginn mætti hér maður að austan og taldi fóstrin í ánum en það höfum við látið gera undanfarin ár. Þetta kom allt saman vel út, langflestar ærnar með tvö lömb, nokkrar einlemdar og einnig þrílemdar. Sæðingarnar koma einnig vel út þannig að húsbóndinn er afar ánægður með þetta allt svo ég tali nú ekki um systur hans sem eru afskaplega áhugasamar um þessi mál en það sama má ekki segja um mig.

Tamningar ganga vel og Kristján Hjalti stendur sig vel í þeim málum. Hann er farinn að fara á bak á Rökkvadótturinni og hún er fljót að læra, beygjir sig á alla kanta, bakkar við bendingu og teymist eins og hún hafi aldrei gert annað og þetta allt á hálfum mánuði. Það er von okkar að hún stigist vel í byggingu þó hún sé á fjórða vetur og svo er bara að sjá hvernig hæfileikarnir verða.

Einari líkar vel við Bríeti Forsetadóttur og tamnigar og þjálfun ganga vel með hana. Síðan er ætlunin að taka nokkur hross inn til við bótar næstu daga og járna þau.

Set inn nýjar myndir af þeim Bríeti, Toppu og Björt en Bjössi í Hólakoti er með hana.

Rok og meira rok

Það er nú meira þetta rok sem búið að vera hér undanfarið, varla svefnfriður og plast og drasl hangir á öllum girðingum. Ótrúlega leiðinlegt en þessu fer senn að ljúka, spáð kulda og snjókomu en það er allt betra en þetta.

Þórhildur okkar er farin að keyra eins og herforingi og Guðbjörg bíður eftir æfingaleyfinu en það dettur inn á morgun eða hinn. Það er mikið að gera hjá þeim í leik og starfi og eru 4 próf hjá Þórhildi þessa vikuna svo það þarf mikið að lesa og reikna.

Ég var að skoða auglýsingu inn á hestavefunum í dag og kannaðist við mynd sem birt var í tenglsum við Skagfirsku mótaröðina en þetta er ein myndanna sem Einar gerði inn í Svaðastaðahöllina á sínum tíma. Þetta voru allt myndir sem voru gerðar með sögu Skagafjarðar í huga s.s. saga Þórðar Dúfunefs er hann þreytti kappreiðar á Kili á hryssunni Flugu sem hann nefndi svo bæ sinn eftir, Flugumýri. Einnig gerði hann myndir um hvarf séra Odds frá Miklabæ og myndir með tilvísun í Örlygsstaðabardaga.

Set inn mymdir af hinu og þessu, gamalt og nýtt.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skemmtileg ferð

Í gær fórum fórum við í mjög skemmtilega ferð með fjárræktendum í inn-Eyjafirði ásamt Höfðhverfingum og var ferðinni heitið á Vatnsnesið  og fjórir bæjir heimsóttir eða Vatnshóll, Bergsstaðir og Böðvarshólar. Þetta var í alla staði frábær ferð þar sem félagsskapurinn var einstakur, móttakan með eindæmum góð, veðrið gott og allir skemmtu sér vel.

Einar var á sínum tíma eða fyrir 33 árum að temja á Gottorp í Vestur-Hópi og eignaðist þar góða félaga en hefur aldrei farið á þessar slóðir síðan. Það voru því fagnaðarfundir þegar hann hitti gamla félaga af þessum slóðum. Húsfrúin var nú ekki mjög áhugasöm þegar hún var munstruð í þessa ferð þar sem áhuginn liggur nú ekki sérstaklega á þessum væng en það var nú fljótt að breytast í góðum félgsskap og Vatnsnesið og umhverfið einstaklega fallegt.

Hér var gestkvæmt í morgunsárið og eftir hádegið fórum við hjónin ásamt Kristjáni Hjalta í húsin og héldu þeir áfram að eiga við tamningahrossin en ég var meira í tiltekt og gegningum. Hún er fljót að læra Svörru- og Rökkvadóttirin og verður þess stutt að bíða að farið verði á bak á henni en hún var járnuð í dag.

Set hér inn myndir úr ferðinni og af Tjaldi en það er foli á 4 vetur undan Björk og Hrim.

Afmælistíð

Það hefur mikið verið um afmælisveislur undanfarið, fyrst átti María vinkona stelpnanna afmæli, síðan húsfrúin, síðan mamma og loks fyrrum vinnufélagi minn og góður vinur og þetta stóð yfir í eina viku.

Við systkinin héldum mömmu veislu og þar sem hún vildi engar gjafir á 75. ára afmælinu þá skrifaði hver og einn henni bréf sem hún hefur verið að lesa síðustu daga en þetta er orðinn góður hópur sem henni stendur næst.

Einar er kominn með aðstoðarmann í hesthúsið en hann heitir Kristján Hjalti og er 17. ára menntaskólastrákur sem er þaulvanur hestum. Hann mun koma u.þ.b. 5 sinnum í viku og hjálpa Einari við tamningar. Þeir eru byrjaðir á Bríeti og einnig Toppu Rökkvadóttur á 4. vetur sem er glæsihryssa undan Svörru og Rökkva. Svarra er einnig móðir Glóðar sem Anna Katarína og Óli Svans eiga og hún hefur verið að keppa á undanfarin ár. Við fengum Svörru frá Fjalli frá þeim og hún hefur gefið okkur nokkur hross s.s. Bjarkar og Barra sem Óli og Anna Katarína eiga.

Set inn myndir af Maríu afmælisbarni með vinkonum sínum og Glóð en einnig af Lunda Rökkvasyni sem er kominn í hús og á að fara að temja en hann er á 4 vetur undan Björk og Rökkva. Einnig er mynd af mömmu og Þórði bróður fyrir ofan æskuheimili hennar Sölvholt í Flóa en þar vorum við á ferð í tengslum við ættarmót fyrir einu og hálfu ári síðan.

 

 

Folaldasýning og Bríet komin í hús

Það er helst að frétta að við drifum okkur með 4 folöld á folaldasýningu á vegum Náttfara á laugardaginn. Það gekk ágætlega og lenti Gjóla Bjarkar- og Kvistsóttir í 3. sæti í flokki merfolalda.  Hálkan var gífurleg þegar við lögðum af stað og þurfti Jón Elvar bróðir að draga okkur upp á keðjuðum traktor svo við gætum komist. Við héldum síðan þorrablót hér heima í góðra vina hópi og á sunnudaginn tókum  við daginn snemma og fórum niður á Akureyri og sóttum Bríeti en hún var að koma frá Reykjavík. Þetta er falleg meri á 5. vetur undan Forseta frá Vorsabæ og Dís frá Möðrufelli en hún er undan Drottningu frá Brún og Höldi frá Brún. Einar járnaði hana í kvöld og á að fara trimma hana upp. Forseti hefur verið að gefa okkur góð hross og lofar hún mjög góðu. Set hér inn myndir af Gjólu og foreldrum en því miður á ég enga mynd af Bríeti en það bíður betri tíma.

Folaldasýning hjá Náttfara

Í dag fórum við og tókum folöldin frá sem við förum með á folaldasýningu á morgun á Melgerðismelum. Þessi folöld eru Gjóla undan Björk og Kvisti, Folda undan Vöku og Glym frá Innri-Skeljabrekku, Birnir undan Löngu-Brúnku og Gígjari og Tinni undan Hrafntinnu og Hófi. Síðan er hugmyndin að taka folöldin inn og spekja áður en þau fara aftur til mæðra sinna. Tókum einnig inn tvö tryppi sem á að fara eiga við.

Annars er allt gott að frétta frá Brúnum, við höfðum reiknað með að fara til Reykjavíkur um helgina en vegna veðurs og áætlana dætranna varð ekkert úr því og förum því á folaldasýningu í staðinn.

Það hefur verið umhleypingasamt undanfarið og eftir talsverða snjókomu er komin hláka og sést í auða jörð sumstaðar.

Þórhildur er í skólanum og strax búin að fara í eitt eðlisfræðipróf en Guðbjörg er í próflokafríi og hefur það náðugt þess á milli sem hún tekur ökutímana og það fer að styttast í að þær fari að keyra dömurnar.

Ég set hér inn myndir af hinu og þessu sem hafa verið teknar undanfarið:-)

Valur farinn í trimm

Í morgun fórum við í Hólakot með Val en hann er búinn að vera hjá okkur síðan í haust er hann kom úr hólfi. Valur er sameign Bjössa, Einars og Hákonar og er undan Gusti frá Hóli og 1. verðlauna hryssunni Tign frá Úlfsstöðum. Bjössi ætlar að trimma hann upp þar til hann fer til Bjarna Jónasar en hann var einnig með hann í fyrravetur. Bjössi sýndi okkur síðan Sigurrós og Björt og eru þær í feikna formi báðar. Björt ætla þau að selja fyrir okkur en hún er úrvals tölthryssa með allan gang. Hann sýndi okkur líka Friðrik X bróður Vals og þar er aldeilis gæðingur á ferð.

Bríet Forseta- og Dísardóttir frá Möðrufelli er á leiðinni norður en hún hefur verið fyrir sunnan sl. ár hjá Ævari Erni. Bríet fór vel af stað í fyrra og ætlar Einar sjálfur að vera með hana í vetur.

Annars hefur verið mikil úrkoma í dag og hlóðst snjórinn mikið í hóf. Set inn myndir á morgun sem ég tók í dag.

Hláka og vindasamt

Veðrið er hugleikið flestum íslendingum og þar á meðal mér. Það hefur gengið á ýmsu undanfarið og nú eru allar heimreiðar ísaðar og erfiðar yfirferðar og tekur það talsverðan tíma að komast í Grýtu og gefa stóðinu.

Við tókum daginn snemma og  fórum í skírn á Hrafnagil þar sem nýjasta heimasætan var skírð og heitir sú stutta Iðunn. Hún brosti sínu sælasta og hjalaði framan í prestinn þegar hann gaf henni nafnið.

Annars er fátt að frétta, vinna, skóli og hið daglega amstur, stelpurnar í ökuskóla og ökutímum og fara brátt að keyra okkur foreldrana. Svona líður tíminn ;0)

Set innn myndir af henni Skáldu minni en hún er Vilmundar- og Birtudóttir og lét ekki mikið yfir sér þegar hún fæddist en nú um áramótin þá skoðuðum við hana og er órtúlegt hvað hún hefur breyst og þroskast vel, með mikinn og fallegan háls og að verða eins og drottning. Þannig var það líka með Bjart, Markúsarsoninn hennar Birtu, lítill og lét  lítið yfir sér framan af en var óþekkjanlegur þegar hann kom úr hólfi í haust. Set inn nýjar myndir af þeim fljótlega en hér eru myndir af þeim nýfæddum til þess að gera og ein mynd af þeim Hrafnagilssystrum Freyju og Heiðrúnu að gefa á garðann.

Fall er fararheill

Það er helst að frétta að lífið er farið að ganga sinn vanagang eftir miklar veislur og frí í vinnu og skóla. Árið fór nú ekki vel af stað en Auðbjörn æskuvinur Einars er kominn heim úr aðgerð í RVK þar sem festar voru titanplötur í andlitsbeinin en hann slasaðist á nýjársdag er hestur sló hann í andlitið. Honum er ekki fysjað saman honum Bjössa og hef ég mikla trú á að þetta aftri honum ekki lengi í leik og starfi og að hann verði fljótur að jafna sig. Einar náði sér svo í sýkingu í fótinn og á nýjársdag eyddi hann megninu af deginum á slysadeildinni og einnig deginum þar á eftir en hann er líka að skríða saman. Þetta ár á þá sennilega eftir að verða þeim félögum gott ef eitthvað er að marka setninguna „fall er fararheill“. Bjössi er búinn að vera með Birtudóttirina Björt og það gengur vel, hún er góður töltari og fer vel af stað.

Við náðum að kíkja á Halldór og Diddu um hátíðina og sjá þá félaga Hljóm og Tjald. Þeir koma vel af stað og er meira að segja búið að merkja stíuna hjá Hljóm með nafninu hans útskornu í við en önnur heimasætan á bænum gerði það af miklu listfengi. Tjaldur er flottur, faxmikill og gæfur en var fljótur að læra að opna stíuna og næla sér í aukabita. Hann er því komin í sérstakt aðhald sem hann nær ekki að leika á.

Við vorum í mikilli veislu hjá Þóru systur og fjölskyldu um áramótin og var gaman að hafa allt þetta fólk og þessa litlu fjölskyldumeðlimi í kringum sig. Guðbjörg fer að byrja í prófum og Þórhildur byrjar í skólanum á morgun. Þær byrja einnig í ökutímum á morgun svo það er í nógu að snúast. Við hlökkum til að takast á við verkefni nýs árs og vonandi reynist það öllum gott og gjöfult.