Gleðilega jólahátíð
Þá standa jólin sem hæst og mikið búið að vera um dýrðir. Við vorum að vanda hér heima fjölskyldan á aðfangadagskvöld og á jóladag hittist stórfjölskyldan hjá mömmu á Laugalandi. Við þökkum allar góðar kveðjur og hlý orð og hlökkum til að njóta samvista við vini og vandamenn á komandi ári. Einar fékk landsmótsspólurnar frá okkur mæðgum í jólagjöf og á talsverður tími eftir að fara í að skoða þær.
Set hér inn myndir sem hafa verið teknar undanfarna daga en milli jóla og nýjárs verður farið í Grýtu og stóðið flokkað betur og þá verða teknar myndir.
Ný forustkind
Hann Einar minn gaf mér forustukind sem hann svo færði mér um helgina og á hún að heita Álfheiður. Hún er ættuð frá okkur en þar sem við sjáum ekki að Valkyrja eigi gimbrar frekar en undafarin ár þá var gripið til þessa ráðs. Inga systir hans fór með honum í þennan túr og voru þau alsæl með gripinn.
Ester og Bjössi seldu fyrir okkur hana Sigurrós og erum við afar ánægð með þá sölu, hún var ekki lengi að þessu húsfreyjan í Hólakoti en þau eru búin að byggja upp mikil sambönd víða um heim við fólk sem treystir þeim.
Einar og Inga systir hans eru í fjárhúsunum þessa dagana og er verið að fara með hrútana á sína staði og allt gert samkvæmt kúnstarinnar reglum. Einar og Jón Elvar bróðir fóru í dag og náðu í hangikjetið í Hólmavað og er þetta eins og vanalega ákaflega vel gert.
Ég set inn myndir af hinu og þessu sem filmað er og m.a. af púða sem ég saumaði en Einar teiknar mynstrin fyrir mig og eru þeir að verða all nokkrir púðarnir sem ég hef saumað.
Stóðið komið á gjöf
Við erum komin með nýja tölvu þar sem hin gaf upp öndina og ég er ekki alveg búin að átta mig á hvernig hún virkar og er því frekar sein að setja inn á síðuna. Við erum komin með öll hross á gjöf en mikill kuldi er búin að vera undanfarið og talsverður snjór. Undanfarnir dagar hafa farið í kynbótastarfið í fjárhúsunum og Sverrir í Bringu mætir hér reglulega með strá úr hinum og þessum hrútinum af sæðingastöðvunum.
Það gengur vel hjá þeim Halldóri og Diddu með þá Tjald og Hljóm og er búið að fara á bak á þeim báðum:’)
Stelpurnar eru á kafi í prófum og hefur verið mikið að gera hjá þeim, Þórhildur á eftir síðasta prófið sem er á morgun og Guðbjörg er einnig í tveimur prófum þann dag. Annars fara dagarnir í hefðbundin störf og jólaundirbúning en við Þóra systir og Mamma gerðum laufabrauð um síðustu helgi og það er gott að það sé frá. Einnig áttum við frábært kvöld á RUB 23 með Ester og Bjössa og er aldeilis óhætt að mæla með þeim stað.
Það er einnig að frétta að Hákon æskuvinur Einars er enn og aftur að gera merkar uppgvötanir með sínu fólki í vísindaheiminum en í gær kynnti hann niðurstöður rannsókna á ADHD og einnig framleiðslu á lyfi við þeim sjúkdómi/röskun sem hrjáir mörg börn og gerið þeim lífið erfitt. Frétt af þessu má lesa á : http://medicalxpress.com/news/2011-12-gene-adhd-defects-brain-pathways.html. :’)
Set inn mynd af þeim félögum sem tekin var í afmæli Einars fyrir um ári síðan og einnig fleiri myndir úr safninu.
Hestar og menn

Það er sitthvað að gerast þessa dagana. Það fóru tveir folar til þeirra Halldórs og Önnu Maríu eða þeir Hljómur og Tjaldur. Hljómur er undan Flótta og Brák og Tjaldur er undan Björk og Hrim en þau ætlar að byrja á þeim fyrir okkur. Við erum búin að taka Sigurrós á hús en hún á leiðinni í sölumeðferð í Hólakot. Það er búið að skreyta húsið að utan með jólaljósum og lífgar það upp á skammdegið. Þórhildur byrjuð í prófum og Guðbjörg að undirbúa sig undir árshátíð MA, jólagleði framundan á vinnustöðunum okkar ásamt ýmsu öðru skemmtilegu.
Hvítt yfir öllu í morgun
Þá kom að því að snjórinn léti sjá sig og það var ekki laust við að þessar hvítu flygsur gleddu mann í morgunsárið. Það er búið að rýja ærnar á bænum og er alltaf gott þegar því er lokið. Um helgina tókum við nokkrar myndir úr stóðinu og set ég inn myndir frá þeirri ferð.
Beglind og Jón eignuðust fjórðu stelpuna í morgun og eru þau aldeilis orðin rík á þeim bænum og að tilefni þess set ég mynd af henni Heiðrúnu frænku minni sem var tekin hér nýlega en hún hefur komið í heimsókn reglulega til að kíkja á kettlingana á bænum.
Girðingavinna
Helgin var m.a. notuð til að girða Grúsina í Grýtu af en þar ætlum við að hafa folaldsmerarnar í vetur og mun ekki væsa um þær þar, með skjól á alla kanta. Það er mjög óvanalegt að geta staðið í girðingavinnu eins og um hásumar væri að ræða og desember á næsta leiti. Við vorum í mjög skemmtilegu afmæli í gærkveldi hjá öðlingsdrengnum Elmari á Hríshóli en það aftraði okkur þó ekki að vera komin út í „vorið“ og að girða í morgunsárið. Í gær náðum við í Lunda Rökkva- og Bjarkarson en hann er búin að vera í allt sumar í nokkrum merum hjá Magnúsi í Samtúni. Hann hefur þroskast vel í og Magnús búinn að gera hann spakann og meðfærilegann
Fyrir rúmlega ári síðan tókum við myndir og settum á síðuna þegar mikið snjóaði um miðjan nóvember. Einnig eru myndir af Lunda sem Ester í Hólakoti tók þegar kappinn var á fyrsta vetur.
Nýtt á sölusíðunni
Skemmtilegheit
Það er fátt að gerast í tamningamálum á Brúnum þessa stundina. Mikið búið að vera að gera í öðru en það fer vonandi að sjá fyrir endann á því.
Húsfrúin búin að vera í RVK í tengslum við vinnuna, bæði vegna HAK og FSA og fór megnið af vikunni í það og Einar varð veðurtepptur í RVK svo ekki gerðist mikið á meðan. Ég bjó í góðu yfirlæti hjá góðum vinum okkar Guðrúnu og Árna og náði að hitta gamlar skólasystur. Í gærkveldi var síðan 60 ára afmæli sveitarstjórans og hestamannsins Jónasar Vigfússonar og konu hans Kristínar Torberg og eftir það kíktum við á árshátíð/uppskeruhátíð Funa og Léttis. Þetta var hin besta skemmtun og gaman að hitta skemmtilegt fólk. Í dag ætlum við að fara í Grýtu og ganga innan um stóðið og kanna hvort allt sér ekki í lagi. Það er þokusúld og ekki víst hvort mögulegt sé að taka myndir. Þórhildur okkar er síðan að dansa í Hofi í dag og við kíkjum að sjálfsögðu á það. Set að gamni inn myndir af hinu og þessu.
Hestar og fuglar
Í dag fórum við með Rökkvasynina okkar í Hólakot og Ester myndaði þá fyrir okkur. Bjössi sýndi okkur einnig Birtudótturina en hún var járnuð upp á nýtt í gær en hann var búinn að fara tvisvar á bak á henni og þess verður ekki langt að bíða að hún verði orðin vel reiðfær.
Ég tók daginn semma og útbjó fuglamat úr mör, reyniberjum og sesamfræjum sem Berglind mágkona mín á Hrafnagili gaf mér. Úr þessu urðu dýrindis hjörtu sem ég hengi á tréin hér í garðinum og þrestirnir, auðnutittlingarnir og fleiri fuglar gæða sér á í vetrarhörkunum.
Það eru alltaf að verða fleiri stundirnar sem við gömlu hjónin erum ein í kotinu en í kvöld er Guðbjörg í böðlapartýi þar sem 4. bekkingar bjóða busabekknum sínum í og Þórhildur hjá vinkonu sinni.
Ég set hér inn myndir af kortum sem Einar dundar sér við að rissa þegar hann á dauða stund.
Björt Birtu- og Flóttadóttir
Þær eru komnar í hús kindurnar og erum við búin að gefa þeim inni um tíma. Bleytan setti strik í reikninginn en það hefur verið óvenju mikil úrkoma undanfarið og það í formi rigningar. Við erum einnig með nokkra fola á húsi þ.m.t. tvo ógelta Rökkvasyni sem eru á fjórða vetur. Þeir eru með endæmum þægir og ljúfir, hafa aldrei sýnt annað en geðprýði og eru verulega spennandi. Þorvaldur Árni hældi Rökkva mikið á sínum tíma fyrir geðslag og vilja og geðslaginu hefur hann svo sannarlega skilað til þessara fola. Ester ætlar að mynda þá fyrir okkur þegar styttir upp og birtir.
Bjössi í Hólakoti er með Björt Birtu- og Flóttadóttur fyrir okkur en hún er á fimmta vetur. Hann segir hana fara vel á stað og hér eru myndir af henni á fjórða vetur en þá byrjaði Einar að eiga við hana.




































