Myndlist
Einar útskrifaðist úr grafíkdeild Mynd- og Handíðaskóla Íslands 1996. Hann hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Einnig rak hann Gallerí Svartfugl á Akureyri í nokkur ár ásamt Sveinbjörgu Hallgrímsdóttur. Einar er með vinnustofu á Brúnum þar sem hann sinnir myndlistinni og einnig hefur hann verið með námsskeið.











