Forsíða
Ljóni mætir á Fáka og fjör
Þá hefur Bergur á Ketilsstöðum staðfest það við okkur að hann komi með Ljóna frá Ketilsstöðum á Fáka og fjör sem verður haldið hér i Top Reiter höllinni um næstu helgi. Okkur hlakkar mikið til að sjá þann skjótta en hann ku aldrei hafa verið betri. Einstakur hestur með 9.0 fyrir fætur og 10.0 fyrir hófa og alls 8.61 fyrir byggingu og hæst með 8.35 fyrir hæfileika. Liturinn skemmir ekki og við horfum líka til þess að fá kannski rauðskjótt í Brúnastóðið en það hefur hingað til mikið verið brúnt og rautt með undantekningunum frá henni Björk sem hefur gefið okkur brúnskjótt. Lýsa hefur gefið okkur moldótt og leirljóst og vonumst við til að fá moldótt undan henni og Þey frá Prestbæ.
Sveinn Hervar verður einnig hjá okkur í sumar og Hrafn frá Auðsholtshjáleigu en hann er undan Gígju og Krák frá Blesastöðum og er á fjórða vetur. Gígja var efsta heiðursverðlaunahryssa landsins árið 2011 og Krákur er að sanna sig sem kynbótahestur. Hrafn er með 125 stig í blup og þar af 127 fyrir tölt. Svein Hervar þekkja allir og eru til kynbóta- og keppnishross undan honum í miklu mæli, m.a. voru tvær dætur hans heimsmeistarar á síðasta ári eða þær Ósk frá Þingnesi og Smá frá Þúfu.
Vorverkin hafin
Það er búið að vera einmunatíð undanfarið og vorverkin hafin sem alla jafnan er verið að gera mánuði seinna. Fuglarnir vekja mann á morgnana með söng og allt er að gerast úti í náttúrunni. Inga mágkona og Símon birtust hér í gærmorgunn og voru smíðaðar burðarstíugrindur langt fram á dag svo allt sé tilbúið fyrir sauðburðinn í lok mánaðarins.
Það var rekið hér og riðið út í gær og Kristján sá um þá hlið. Biggi og Auður ásamt fylgdarliði mættu hér með fríðan flokk og Kristján fór á móti þeim og fylgdi þeim einnig úr hlaði. Ótrúlega duglegur drengurinn og stendur sig vel í því sem hann tekur sér fyrir hendur.
Við Einar tókum daginn snemma og gengum á bökkum Eyjafjarðarár með Grímu en þetta eru hennar bestu stundir þegar þangað er farið sem við gerum alloft. Hún er að verða dálítið gömul og hefur fylgt okkur í 11. ár.
Það er allt að skýrast með stelpurnar og eins og staðan er í dag þá eru þær báðar að yfirgefa okkur í haust og fara sem skiptinemar til Frakklands og Ítalíu í eitt ár. Guðbjörg er búin að fá inni í Frakklandi og Þórhildur á Ítalíu. Við verðum þá ein í kotinu með köttinn, hundinn og verður það sérstök tilfinning. Þær mæta svo í sína skóla að ári liðnu, reynslunni ríkari og víðsýnni:-)
Set hér inn myndir af þeim, gamlar og nýjar.
Vel gengur í tamningum
Það er alltaf nóg að gera og situr það á hakanum að setja eitthvað inn á þessa síðu. Við erum búin að vera dugleg við að reka tamninga- og þjálfunarhrossin undanfarið og munar mikið um að geta farið beinustu leið úr hólfinu hjá okkur og niður á hitaveituveg og niður í réttina hjá Höskuldsstöðum. Þetta gekk nú ekkert sérstakalega vel í fyrstu skiptin en nú er allt á réttri leið. Fyrir utan Toppu, Rökkva og Svörrudóttir sem er á 4. vetur og Björt, Birtu og Flóttadóttir á 5. vetur þá erum við með Gerplu sem eru undan Kormáki og Silfurtá, Evu frá Sólheimum sem er undan Adam frá Ádmundarstöðum og móðirin er systir Parkers frá Sólheimum, Dreyru sem er undan Lýsu frá Höfða og Væng frá Brúnum, Lilluna sem er undan Flótta og Hrafnhettu frá Höfða og síðan er Bjössi með Eik, Flótta og Björk og Bríeti sem eru undan Forseta og Dís frá Möðrufelli. Halldór Lind er síðan með Birnu frá Brúnum sem er undan Flótta og Lilju frá Æsustöðum.
Ég er búin að setja niður slatta af fræjum og eru þau þegar farin að koma upp, basilika, koriander og allskyns sumarblóm. Set inn myndir af uppskerunni frá því í fyrra.
Eftir morgundaginn er megnið af fjölskyldunni komin í páskafrí og þá á að taka til hendinni við ýmislegt hér heima við;-) Hér eru einnig nostalgíumyndir af þeim systrum.
Ljóni frá Ketilsstöðum á Brúnum í sumar
Þá er það frágengið að stóðhesturinn Ljóni frá Ketilsstöðum verði hér í hólfi í sumar. Ljóni er stórættaður langt fram í ættir og mikill gæðingur. Hann verður sýndur á komandi landsmóti en gekk ekki heill til skógar á því síðasta. Hér er dómur frá 2010 en þá er Ljóni 6. vetra og hefur hann hækkað í byggingu í 8.61.
Set hér inn upplýsingar sem teknar eru af heimasíðu Gegnishóla sem skrifað var 2011.
„Síðustu kynbótahrossin sem ég á eftir að kynna sem við vorum með á Landsmótinu, eru þeir Ljóni og Gandálfur, en þeir voru í flokki 7 vetra stóðhesta og eldri. Ljóni er sonur Ljónslappar og Álfasteins frá Selfossi. Ljónslöpp er með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og Álfasteinn náði skilyrðunum fyrir heiðursverðlaun í ár aðeins tíu vetra gamall. Hér er svo sem ekki miklu við að bæta, nema þó eitt og það er að Ljónslöpp er dóttir Odds frá Selfossi og það er einnig Stelpa frá Meðalfelli, en hún er móðir Spuna frá Vesturkoti. Þannig að Spuni og Ljóni er 3/4 bræður, ekki dónalegt það.
Ljóni hefur ekki átt gott ár í ár því ekki hefur verið hægt að þjálfa hann langtímum saman vegna múkks og alskonar slappleika og efnavöntunar, það var svo þrálátt að það leit alls ekki vel út með það að það væri yfir höfuð hægt að fara með hann í dóm.
Ákvörðunin var hins vegar tekin að fara með hann, vegna þess að það er erfitt að sleppa úr heilu ári í sýningu á ungum hesti, menn sem eru búnir að panta vilja jú fá að sjá þá en eftir á að hyggja hefði kannski verið best að sleppa því, en ef maður væri alltaf með svoleiðis hugafar kæmist maður nú ekki langt.
Útkoman varð alla vega að hann lækkaði frá í fyrra, fyrst á Hellu og svo aftur á Landsmótinu. Ekki mikið þó, en ef allt hefði verið með felldu mætti nú ætla að hann hefði átt að hækka. Í fyrra var hann með 8,39 í aðaleinkunn en lægstur var hann í ár með 8,35 á Landsmótinu, þó svo að hann hækkaði verulega fyrir sköpulag milli ára, úr 8,44 í 8,61 enda er hann fjallmyndarlegur og vel gerður. Hann hækkaði úr 7,5 í 8,0 fyrir höfuð, úr 6,5 í 7,0 fyrir réttleika, úr 9,5 í 10 fyrir hófa og úr 8 í 8,5 fyrir prúðleika. það er engin smá undirvagn á hestinum 9,0 fyrir fótagerð og 10 fyrir hófa“.
M1 144 V.fr. 9,0 Höfuð 7,5 Tölt 8,5 M2 133 H.fr. Háls/herðar/bógar 8,5 Brokk 8,5M3
140 V.a. 8.8 Bak og lend 8 Skeið 8,0 M4 67 H.a. Samræmi 8.5 Stökk 8,0 M5 149 Fótagerð 9,0 Vilji og geðslag 8,5 M6 40 Réttleiki 6,5 Fegurð í reið 8,5 M7 50 Hófar 9,5 Fet 8,0 M8 43 Prúðleiki 8.0 Hæfileikar 8,35 M9 6.6 Sköpulag 8.44 Hægt tölt 8,5 M10 31,5 Hægt stökk 7.5 M11 19,5Aðaleinkunn
8,39Mars
Þá er farið að síga á seinnihluta marsmánaðar og fréttir berast að því að lóan sé komin að kveða burt snjóinn. Helgin var góð og á laugardagskvöldið fórum við í fertugsafmæli til Kalla vinar okkar og skemmtum okkur með fádæmum vel. Við fórum með Eik í Hólakot á laugardaginn og tókum Björt í staðin en Bjössi ætlar að þjálfa hana fyrir okkur. Hún hefur geysimikinn fótaburð og ber sig vel og verður gaman að sjá hvernig hún verður í framhaldinu.
Við fáum þær fréttir úr Skagafirðinum að vel gangi með Val og ætlum við að kíkja á hann þegar við förum vestur á stóðhestaveisluna í lok mánaðarins.
Gestur endurjárnaði Toppu í dag og gerði það vel eins og hann er kunnur fyrir. Kristján heldur svo áfram með hana en þau eru hrifin hvort af öðru og gerir hún mannamun sú rauða:)
Það fer að styttast í sauðburðinn eða um mánuður og Einar og systur hans bíða í eftirvæntingu:) Nóg er að gera framundan og alltaf til einhvers að hlakka, setja niður fræin, taka til í gróðurhúsinu og klára bókina „Táknmál blómanna“ eftir Vanessu Diffenbaugh en það er ótrúlega áhugaverð bók. Við fáum nokkur folöld m.a. undan Hrannari frá Flugumýri og Birtu, Þey frá Prestbæ og Löngu-Brúnku, Þey og Ísgerði, Klakanum frá Skagaströnd og Hrafntinnu, Gára frá Auðsholtshjáleigu og Venus og Gára og Þrætu og svo loks Björk og Vaðli frá Njarðvík. Við erum einnig búin að fá staðfestingu fyrir því að Birta fari til Spuna en annað er ekki klárt fyrir komandi sumar en við notum að sjálfsögðu Svein-Hervar en hann verður hér í hólfi.
Lifið heil:)
Tamningar ganga vel
Tamningar ganga vel en Einar, Kristján og Guðbjörg eru hvað duglegust í þeim efnum. Halldór Lind tók folöldin í gær og fer að styttast í að við sleppum þeim aftur niður í Grýtu. Toppa, Svörru og Rökkvadóttir verður járnuð að nýju um helgina og Kristján heldur áfram með hana. Það er búið að vera gott veður undanfarið og viðrað vel til útreiða og munar það öllu. Kerlingin skartaði sínu fegursta í morgunsárið með bleika toppa en hún ku vera hæsta fjall á norðurlandi og á hana horfum við beint út um gluggann í vestri.
Þær systur fóru að hitta vinkonur sínar í kvöld en það átti að hittast og horfa á MA keppa við Kvennó í gettu betur en það fór ekki vel sýndist mér. Þórhildur Einarsdóttir skilaði inn umsókninni sinni til AFS í vikunni en hana dreymir um að komast til Ítalíu eða Ameríku sem skiptinemi og svo er bara að sjá hvort það gangi upp þetta árið.
Rok og rok
Það hefur allt fokið hér sem getur fokið og okkur var ekki svefnsamt hér síðustu nótt vegna óðveðurs. Það hefur því ekki verið riðið út síðustu tvo daga en meira brasað innan dyra. Halldór Lind kom hér í gær og teymdi folöldin og hjálpaði Einari við Lunda, Rökkva- og Bjarkarson sem er á fjórða vetur. Það eru fínar hreyfingar í þeirri stuttu, Skáldu sem er undan Vilmundi og Birtu og hún kemur einnig vel út hryssan undan Steinborgu og Öl.
Við áttum góða helgi hér í rólegheitum með góðum gestum og merkilega líða helgarnar fljótt eins og vikan öll
Set inn myndir sem Anna María tók núna á laugardaginn.
Mars 2012
Hann Laufi fór á skeifur í gær og verður farið að fara á bak á honum fljótlega. Hann er Bjarkar- og Rökkvasonur og ætti því að vera efnilegur en það á allt eftir að koma í ljós. Við fórum með Bríeti í Hólakot á sunnudaginn en þangað fer hún í trimm en hún er alltof feit og þarf að ná af sér kílóunum áður en haldið verður áfram með hana (Bríet frá Brúnum IS2007265299, er jarpstjörnótt undan Forseta frá Vorsabæ (8,58) og Dís frá Brún (7,88). Bríet er stór og myndarleg og líkist föður sínum. Dís er frá Matta í Möðrufelli og alsystir Dósents frá Brún undan Heldi og Drottningu en Drottning var annáluð tölthryssa).
Einar, Kristján og Guðbjörg ríða út eins og herforingjar og er margt um spennandi gripinn í húsunum. Folöldin sem eru inni núna voru öll tekin í gær og teymd út og átt við þau en stefnan er að sleppa þeim eftir tvær vikur en þá ættu mæður þeirra að vera orðnar geldar af mjólk. Folaldshryssurnar eru allar í sér hólfi og hafa það náðugt á meðgöngunni.
Set inn myndir af hinu og þessu sem fannst í gömlum albúmum:-) Og myndband af Eik (4vetra) sem hægt er að nálgast hér eik (2) Eik er nú komin í hús en hún var komin vel af stað en veiktist illa af flensu 2010.
Glymur að vinna stórmót
Sumarið 2010 höfðum við Glym frá Innri-Skeljabrekkur hér í hólfi. Við héldum þremur hryssum en fengum einungis eitt folald og það er mikið djásn en hún heitir Folda. Glymur er að gefa góð hross og var gaman að hafa hann hér um sumarið. Hann var síðan seldur út í fyrra og er þessa dagana að vinna þar stórmót:)
Við tókum folöldin inn eftir folaldasýninguna um mánaðamótin janúar/febrúar, teymdum þau og áttum aðeins við þau og var þeim síðan sleppt í gær og önnur tekin inn. Folda var fljót að læra og teymdist fram og til baka en var heldur betur glöð þegar henni var sleppt í gær og hitti móður sína á nýjan leik.
Halldór Lind og Anna María hjálpuðu Einari í gær að flokka í stóðinu, folöld voru tekin inn, örmerkt og gefið ormalyf þeim sem þurftu. Við tókum í hús hryssu undan Adam frá Ásmundarstöðum og einnig Eik, Bjarkar- og Flóttadóttur.
Valur farinn í Skagafjörðinn
Seinnipartinn á sunnudaginn fórum við ásamt Bjössa og Ester í Hólakoti með Val í Narfastaðir en hann mun verða þar í þjálfun fram á vorið og verður svo vonandi sýndur. Hann er í góðu formi, búin að hlaupa í Hólakoti undanfarnar vikur og þolið og liðleikinn verður fyrir hendi þegar áframhaldandi tamning byrjar. Skagafjörðurinn skartaði sínu fegursta og allstaðar voru hestar og menn á ferð.
Við urðum þó að gera eitt sem fjölskyldan hefur kviðið fyrir lengi og það var að fella Uglu. Ugla var orðin 25 vetra gömul og fæddist á afmælisdaginn hans pabba eða 25. maí 1987 en þann dag keyrðum við Einar vestur á Ísafjörð til að vinna um sumarið. Pabbi hringdi og lét okkur vita að fædd væri rauðblesótt, sokkótt hryssa. Hún var skírð Ugla vegna þess hve hringeygð hún var en faðir hennar var Þáttur frá Kirkjubæ og móðirin Svala frá Kolkuósi. Svölu tamdi Einar á sínum tíma á Hólum og var hún mikil uppáhaldshryssa. Við reyndum að halda Uglu margsinnis en hún hélt aldrei, hún fór m.a til Kjarvals, Oturs og fleiri þekktra stóðhesta. Gylfi Gunnarsson tamdi hana fyrir okkur þegar Einar var í Myndlistaskólanum og gerði það vel. Hún var reiðhrossið hennar Þórhildar frá því að hún var 5-6 ára og saknar hún hennar sárt.









































