Sveinn-Hervar á Brúnum næsta sumar
Þá hefur verið gengið frá því að Sveinn-Hervar verði hér næsta sumar. Hann mun koma í júní og mun það fara eftir veðri og gróðurfari hvernær það nákvæmlega verður. Það verða einnig fleiri stóðhestar hjá okkur en það verður ekki látið uppi að svo stöddu.
Sveinn-Hervar er mikill gæðingur og búinn að sanna sig sem kynbótahestur en hér er nánari lýsing á afkvæmum hans:
Sveinn-Hervar gefur hross í tæpu meðallagi að stærð, höfuð er skarpt og þurrt en eyru löng. Hálsinn er reistur, langur og klipinn í kverk, herðar háar. Bakið mjúkt og breitt og lendin öflug. Afkvæmin eru hlutfallarétt með öflugar sinar og þurra fætur en lítil sinaskil og nágenga afturfætur. Hófar eru efnisþykkir og prúðleiki all góður. Þau eru nær eingöngu klárhross með taktgóðu hágengu tölti og brokki. Viljinn er ásækinn en þjáll, afkvæmin fara afar vel með miklu fasi og reisingu.
Sveinn-Hervar gefur vel viljug, reist og öflug klárhross með góðum fótaburði, hann hlýtur fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi.
| Höfuð | 8 |
| Háls / Herðar / Bógur | 8 |
| Bak / Lend | 8.5 |
| Samræmi | 8 |
| Fótagerð | 8 |
| Réttleiki | 8 |
| Hófar | 8 |
| Prúðleiki | 8.5 |
| Sköpulag | 8.06 |
| Tölt | 9 |
| Brokk | 9 |
| Skeið | 5 |
| Stökk | 9 |
| Vilji og geðslag | 9 |
| Fegurð í reið | 9 |
| Fet | 8 |
| Hægt tölt | 9 |
| Hægt stökk | 8.5 |
| Hæfileikar | 8.38 |
| Aðaleinkunn | 8.25 |