Fall er fararheill
Það er helst að frétta að lífið er farið að ganga sinn vanagang eftir miklar veislur og frí í vinnu og skóla. Árið fór nú ekki vel af stað en Auðbjörn æskuvinur Einars er kominn heim úr aðgerð í RVK þar sem festar voru titanplötur í andlitsbeinin en hann slasaðist á nýjársdag er hestur sló hann í andlitið. Honum er ekki fysjað saman honum Bjössa og hef ég mikla trú á að þetta aftri honum ekki lengi í leik og starfi og að hann verði fljótur að jafna sig. Einar náði sér svo í sýkingu í fótinn og á nýjársdag eyddi hann megninu af deginum á slysadeildinni og einnig deginum þar á eftir en hann er líka að skríða saman. Þetta ár á þá sennilega eftir að verða þeim félögum gott ef eitthvað er að marka setninguna „fall er fararheill“. Bjössi er búinn að vera með Birtudóttirina Björt og það gengur vel, hún er góður töltari og fer vel af stað.
Við náðum að kíkja á Halldór og Diddu um hátíðina og sjá þá félaga Hljóm og Tjald. Þeir koma vel af stað og er meira að segja búið að merkja stíuna hjá Hljóm með nafninu hans útskornu í við en önnur heimasætan á bænum gerði það af miklu listfengi. Tjaldur er flottur, faxmikill og gæfur en var fljótur að læra að opna stíuna og næla sér í aukabita. Hann er því komin í sérstakt aðhald sem hann nær ekki að leika á.
Við vorum í mikilli veislu hjá Þóru systur og fjölskyldu um áramótin og var gaman að hafa allt þetta fólk og þessa litlu fjölskyldumeðlimi í kringum sig. Guðbjörg fer að byrja í prófum og Þórhildur byrjar í skólanum á morgun. Þær byrja einnig í ökutímum á morgun svo það er í nógu að snúast. Við hlökkum til að takast á við verkefni nýs árs og vonandi reynist það öllum gott og gjöfult.






