Sarpur

Stóðið komið á gjöf

Við erum komin með nýja tölvu þar sem hin gaf upp öndina og ég er ekki alveg búin að átta mig á hvernig hún virkar og er því frekar sein að setja inn á síðuna. Við erum komin með öll hross á gjöf en mikill kuldi er búin að vera undanfarið og talsverður snjór. Undanfarnir dagar hafa farið í kynbótastarfið í fjárhúsunum og Sverrir í Bringu mætir hér reglulega  með strá úr hinum og þessum hrútinum af sæðingastöðvunum.

Það gengur vel hjá þeim Halldóri og Diddu með þá Tjald og Hljóm og er búið að fara á bak á þeim báðum:’)

Stelpurnar eru á kafi í prófum og hefur verið mikið að gera hjá þeim, Þórhildur á eftir síðasta prófið sem er á morgun og Guðbjörg er einnig í tveimur prófum þann dag. Annars fara dagarnir í hefðbundin störf og jólaundirbúning en við Þóra systir og Mamma gerðum laufabrauð um síðustu helgi og það er gott að það sé frá. Einnig áttum við frábært kvöld á RUB 23 með Ester og Bjössa og er aldeilis óhætt að mæla með þeim stað.

Það er einnig að frétta að Hákon æskuvinur Einars er enn og aftur að gera merkar uppgvötanir með sínu fólki í vísindaheiminum en í gær kynnti hann niðurstöður rannsókna á ADHD og einnig framleiðslu á lyfi við þeim sjúkdómi/röskun sem hrjáir mörg börn og gerið þeim lífið erfitt. Frétt af þessu má lesa á : http://medicalxpress.com/news/2011-12-gene-adhd-defects-brain-pathways.html. :’)

Set inn mynd af þeim félögum sem tekin var í afmæli Einars fyrir um ári síðan og einnig fleiri myndir úr safninu.


Leave a Reply