Eins og við höfum sagt frá áður þá verður Roði frá garði hér í hólfi í sumar. Roði er með 8,33 í einkunn í kynbótadómi sem skiptist svo:
Sköpulag =
| Höfuð |
7.5, |
| Háls/herðar/bógar |
9, |
| Bak og lend |
8.5, |
| Samræmi |
9, |
| Fótagerð |
8, |
| Réttleiki |
7.5, |
| Hófar |
8.5, |
| Prúðleiki |
7.5, |
| Sköpulag |
8.46.
|
|
Kostir =
| Tölt |
9, |
| Brokk |
9.5, |
| Skeið |
5, |
| Stökk |
8.5, |
| Vilji og geðslag |
9, |
| Fegurð í reið |
9, |
| Fet |
8.5, |
| Hæfileikar |
8.33,
|
| Hægt tölt |
8.5, |
| Hægt stökk |
8.5. |
|
Við fórum í Grýtu í dag og gáfum saltsteina og steinefnablöndu en hrossin fóru með annan eins skammt á nokkrum dögum svo þörfin er greinilega mikil. Við tókum fullt af myndum sem ég mun setja inn fljótlega
Roði verður í hólfi í Grýtu og kemur eftir Landsmót. Verðið á folatollinum er 130.000 og er þá allt talið með.
Annars er allt gott að frétta frá Brúnum. Búið að telja í ánum og hefur það aldrei komið betur út, svo till allar með lambi og flestar tvílemdar en fáar ein- og þrílemdar.