Vetur konungur
Þetta er nú meiri tíðin og við búin að vera hér meira og minna innilokuð nema þegar minn dásamlegi bróðir Grettir kemur og blæs hér allt og auðveldar okkur lífið. Hann og Einar voru lengi að ryðja snjónum burt af veginum í Grýtu svo hægt væri að gefa og sinna útigangnum sl. laugardag. Við skruppum með Jónu og Sverri í Bringu í Skagafjörðinn og var upphaflega erindið að taka út tamningu í Tunguhálsi og fara þangað með tamningatryppi en það breyttist og fórum við í Hjaltastaði og Flugumýri. Það var gaman eins og alltaf að hitta Önnu, Palla og börn og sjá allan hestakostinn en í hesthúsinu var hver gæðingurinn á fætur öðrum. Ótrúlega flottur foli undan Krafti og Sif á fjórða vetur og svo náttúrlega Seyður, Segull og Hrannar og gæðingsefni undan Gaum og Hendingu. Það má ætla að þau verði áberandi á næsta landsmóti Flugumýrarhrossin. Það er nóg að gera í vinnunni á öllum vígstöðum og um helgina förum við sparisystur í okkar árlegu ferð í Víðidalinn og skemmtum okkur í veiðhúsinu þar eina helgi. Einar mun sinna börnum og búi á meðan.
Set hér inn nostalgíumynd sem léttir manni lífið í snjónum og skammdeginu þó svo mér sem vatnsbera líki það ekki svo allskostar illa.