Folaldasýning hjá Náttfara
Í dag fórum við og tókum folöldin frá sem við förum með á folaldasýningu á morgun á Melgerðismelum. Þessi folöld eru Gjóla undan Björk og Kvisti, Folda undan Vöku og Glym frá Innri-Skeljabrekku, Birnir undan Löngu-Brúnku og Gígjari og Tinni undan Hrafntinnu og Hófi. Síðan er hugmyndin að taka folöldin inn og spekja áður en þau fara aftur til mæðra sinna. Tókum einnig inn tvö tryppi sem á að fara eiga við.
Annars er allt gott að frétta frá Brúnum, við höfðum reiknað með að fara til Reykjavíkur um helgina en vegna veðurs og áætlana dætranna varð ekkert úr því og förum því á folaldasýningu í staðinn.
Það hefur verið umhleypingasamt undanfarið og eftir talsverða snjókomu er komin hláka og sést í auða jörð sumstaðar.
Þórhildur er í skólanum og strax búin að fara í eitt eðlisfræðipróf en Guðbjörg er í próflokafríi og hefur það náðugt þess á milli sem hún tekur ökutímana og það fer að styttast í að þær fari að keyra dömurnar.
Ég set hér inn myndir af hinu og þessu sem hafa verið teknar undanfarið:-)
Valur farinn í trimm
Í morgun fórum við í Hólakot með Val en hann er búinn að vera hjá okkur síðan í haust er hann kom úr hólfi. Valur er sameign Bjössa, Einars og Hákonar og er undan Gusti frá Hóli og 1. verðlauna hryssunni Tign frá Úlfsstöðum. Bjössi ætlar að trimma hann upp þar til hann fer til Bjarna Jónasar en hann var einnig með hann í fyrravetur. Bjössi sýndi okkur síðan Sigurrós og Björt og eru þær í feikna formi báðar. Björt ætla þau að selja fyrir okkur en hún er úrvals tölthryssa með allan gang. Hann sýndi okkur líka Friðrik X bróður Vals og þar er aldeilis gæðingur á ferð.
Bríet Forseta- og Dísardóttir frá Möðrufelli er á leiðinni norður en hún hefur verið fyrir sunnan sl. ár hjá Ævari Erni. Bríet fór vel af stað í fyrra og ætlar Einar sjálfur að vera með hana í vetur.
Annars hefur verið mikil úrkoma í dag og hlóðst snjórinn mikið í hóf. Set inn myndir á morgun sem ég tók í dag.
Hláka og vindasamt
Veðrið er hugleikið flestum íslendingum og þar á meðal mér. Það hefur gengið á ýmsu undanfarið og nú eru allar heimreiðar ísaðar og erfiðar yfirferðar og tekur það talsverðan tíma að komast í Grýtu og gefa stóðinu.
Við tókum daginn snemma og fórum í skírn á Hrafnagil þar sem nýjasta heimasætan var skírð og heitir sú stutta Iðunn. Hún brosti sínu sælasta og hjalaði framan í prestinn þegar hann gaf henni nafnið.
Annars er fátt að frétta, vinna, skóli og hið daglega amstur, stelpurnar í ökuskóla og ökutímum og fara brátt að keyra okkur foreldrana. Svona líður tíminn ;0)
Set innn myndir af henni Skáldu minni en hún er Vilmundar- og Birtudóttir og lét ekki mikið yfir sér þegar hún fæddist en nú um áramótin þá skoðuðum við hana og er órtúlegt hvað hún hefur breyst og þroskast vel, með mikinn og fallegan háls og að verða eins og drottning. Þannig var það líka með Bjart, Markúsarsoninn hennar Birtu, lítill og lét lítið yfir sér framan af en var óþekkjanlegur þegar hann kom úr hólfi í haust. Set inn nýjar myndir af þeim fljótlega en hér eru myndir af þeim nýfæddum til þess að gera og ein mynd af þeim Hrafnagilssystrum Freyju og Heiðrúnu að gefa á garðann.
Fall er fararheill
Það er helst að frétta að lífið er farið að ganga sinn vanagang eftir miklar veislur og frí í vinnu og skóla. Árið fór nú ekki vel af stað en Auðbjörn æskuvinur Einars er kominn heim úr aðgerð í RVK þar sem festar voru titanplötur í andlitsbeinin en hann slasaðist á nýjársdag er hestur sló hann í andlitið. Honum er ekki fysjað saman honum Bjössa og hef ég mikla trú á að þetta aftri honum ekki lengi í leik og starfi og að hann verði fljótur að jafna sig. Einar náði sér svo í sýkingu í fótinn og á nýjársdag eyddi hann megninu af deginum á slysadeildinni og einnig deginum þar á eftir en hann er líka að skríða saman. Þetta ár á þá sennilega eftir að verða þeim félögum gott ef eitthvað er að marka setninguna „fall er fararheill“. Bjössi er búinn að vera með Birtudóttirina Björt og það gengur vel, hún er góður töltari og fer vel af stað.
Við náðum að kíkja á Halldór og Diddu um hátíðina og sjá þá félaga Hljóm og Tjald. Þeir koma vel af stað og er meira að segja búið að merkja stíuna hjá Hljóm með nafninu hans útskornu í við en önnur heimasætan á bænum gerði það af miklu listfengi. Tjaldur er flottur, faxmikill og gæfur en var fljótur að læra að opna stíuna og næla sér í aukabita. Hann er því komin í sérstakt aðhald sem hann nær ekki að leika á.
Við vorum í mikilli veislu hjá Þóru systur og fjölskyldu um áramótin og var gaman að hafa allt þetta fólk og þessa litlu fjölskyldumeðlimi í kringum sig. Guðbjörg fer að byrja í prófum og Þórhildur byrjar í skólanum á morgun. Þær byrja einnig í ökutímum á morgun svo það er í nógu að snúast. Við hlökkum til að takast á við verkefni nýs árs og vonandi reynist það öllum gott og gjöfult.
Sveinn-Hervar á Brúnum næsta sumar
Þá hefur verið gengið frá því að Sveinn-Hervar verði hér næsta sumar. Hann mun koma í júní og mun það fara eftir veðri og gróðurfari hvernær það nákvæmlega verður. Það verða einnig fleiri stóðhestar hjá okkur en það verður ekki látið uppi að svo stöddu.
Sveinn-Hervar er mikill gæðingur og búinn að sanna sig sem kynbótahestur en hér er nánari lýsing á afkvæmum hans: Sveinn-Hervar gefur hross í tæpu meðallagi að stærð, höfuð er skarpt og þurrt en eyru löng. Hálsinn er reistur, langur og klipinn í kverk, herðar háar. Bakið mjúkt og breitt og lendin öflug. Afkvæmin eru hlutfallarétt með öflugar sinar og þurra fætur en lítil sinaskil og nágenga afturfætur. Hófar eru efnisþykkir og prúðleiki all góður. Þau eru nær eingöngu klárhross með taktgóðu hágengu tölti og brokki. Viljinn er ásækinn en þjáll, afkvæmin fara afar vel með miklu fasi og reisingu.
Sveinn-Hervar gefur vel viljug, reist og öflug klárhross með góðum fótaburði, hann hlýtur fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi.
Höfuð 8 Háls / Herðar / Bógur 8 Bak / Lend 8.5 Samræmi 8 Fótagerð 8 Réttleiki 8 Hófar 8 Prúðleiki 8.5 Sköpulag 8.06 Tölt 9 Brokk 9 Skeið 5 Stökk 9 Vilji og geðslag 9 Fegurð í reið 9 Fet 8 Hægt tölt 9 Hægt stökk 8.5 Hæfileikar 8.38 Aðaleinkunn 8.25Gleðilega jólahátíð
Þá standa jólin sem hæst og mikið búið að vera um dýrðir. Við vorum að vanda hér heima fjölskyldan á aðfangadagskvöld og á jóladag hittist stórfjölskyldan hjá mömmu á Laugalandi. Við þökkum allar góðar kveðjur og hlý orð og hlökkum til að njóta samvista við vini og vandamenn á komandi ári. Einar fékk landsmótsspólurnar frá okkur mæðgum í jólagjöf og á talsverður tími eftir að fara í að skoða þær.
Set hér inn myndir sem hafa verið teknar undanfarna daga en milli jóla og nýjárs verður farið í Grýtu og stóðið flokkað betur og þá verða teknar myndir.
Ný forustkind
Hann Einar minn gaf mér forustukind sem hann svo færði mér um helgina og á hún að heita Álfheiður. Hún er ættuð frá okkur en þar sem við sjáum ekki að Valkyrja eigi gimbrar frekar en undafarin ár þá var gripið til þessa ráðs. Inga systir hans fór með honum í þennan túr og voru þau alsæl með gripinn.
Ester og Bjössi seldu fyrir okkur hana Sigurrós og erum við afar ánægð með þá sölu, hún var ekki lengi að þessu húsfreyjan í Hólakoti en þau eru búin að byggja upp mikil sambönd víða um heim við fólk sem treystir þeim.
Einar og Inga systir hans eru í fjárhúsunum þessa dagana og er verið að fara með hrútana á sína staði og allt gert samkvæmt kúnstarinnar reglum. Einar og Jón Elvar bróðir fóru í dag og náðu í hangikjetið í Hólmavað og er þetta eins og vanalega ákaflega vel gert.
Ég set inn myndir af hinu og þessu sem filmað er og m.a. af púða sem ég saumaði en Einar teiknar mynstrin fyrir mig og eru þeir að verða all nokkrir púðarnir sem ég hef saumað.
Stóðið komið á gjöf
Við erum komin með nýja tölvu þar sem hin gaf upp öndina og ég er ekki alveg búin að átta mig á hvernig hún virkar og er því frekar sein að setja inn á síðuna. Við erum komin með öll hross á gjöf en mikill kuldi er búin að vera undanfarið og talsverður snjór. Undanfarnir dagar hafa farið í kynbótastarfið í fjárhúsunum og Sverrir í Bringu mætir hér reglulega með strá úr hinum og þessum hrútinum af sæðingastöðvunum.
Það gengur vel hjá þeim Halldóri og Diddu með þá Tjald og Hljóm og er búið að fara á bak á þeim báðum:’)
Stelpurnar eru á kafi í prófum og hefur verið mikið að gera hjá þeim, Þórhildur á eftir síðasta prófið sem er á morgun og Guðbjörg er einnig í tveimur prófum þann dag. Annars fara dagarnir í hefðbundin störf og jólaundirbúning en við Þóra systir og Mamma gerðum laufabrauð um síðustu helgi og það er gott að það sé frá. Einnig áttum við frábært kvöld á RUB 23 með Ester og Bjössa og er aldeilis óhætt að mæla með þeim stað.
Það er einnig að frétta að Hákon æskuvinur Einars er enn og aftur að gera merkar uppgvötanir með sínu fólki í vísindaheiminum en í gær kynnti hann niðurstöður rannsókna á ADHD og einnig framleiðslu á lyfi við þeim sjúkdómi/röskun sem hrjáir mörg börn og gerið þeim lífið erfitt. Frétt af þessu má lesa á : http://medicalxpress.com/news/2011-12-gene-adhd-defects-brain-pathways.html. :’)
Set inn mynd af þeim félögum sem tekin var í afmæli Einars fyrir um ári síðan og einnig fleiri myndir úr safninu.
Hestar og menn

Það er sitthvað að gerast þessa dagana. Það fóru tveir folar til þeirra Halldórs og Önnu Maríu eða þeir Hljómur og Tjaldur. Hljómur er undan Flótta og Brák og Tjaldur er undan Björk og Hrim en þau ætlar að byrja á þeim fyrir okkur. Við erum búin að taka Sigurrós á hús en hún á leiðinni í sölumeðferð í Hólakot. Það er búið að skreyta húsið að utan með jólaljósum og lífgar það upp á skammdegið. Þórhildur byrjuð í prófum og Guðbjörg að undirbúa sig undir árshátíð MA, jólagleði framundan á vinnustöðunum okkar ásamt ýmsu öðru skemmtilegu.
Hvítt yfir öllu í morgun
Þá kom að því að snjórinn léti sjá sig og það var ekki laust við að þessar hvítu flygsur gleddu mann í morgunsárið. Það er búið að rýja ærnar á bænum og er alltaf gott þegar því er lokið. Um helgina tókum við nokkrar myndir úr stóðinu og set ég inn myndir frá þeirri ferð.
Beglind og Jón eignuðust fjórðu stelpuna í morgun og eru þau aldeilis orðin rík á þeim bænum og að tilefni þess set ég mynd af henni Heiðrúnu frænku minni sem var tekin hér nýlega en hún hefur komið í heimsókn reglulega til að kíkja á kettlingana á bænum.







































